fbpx

Fréttir

Erindi Fagfundar veitusviðs Samorku

Samanlagt tóku um 180 manns þátt í vel heppnuðum Fagfundi veitusviðs Samorku sem haldinn var á Hótel Borgarnesi dagana 28.-29. maí. Flutt voru rúmlega 40 erindi um málefni hita-, vatns- og fráveitna, auk þess sem fjallað var um öryggismál, umhverfismál, jarðhita, laga- og regluumhverfi veitufyrirtækja og fleira. Farið var í vettvangs- og vísindaferð þar sem m.a. var skoðuð lífræn hreinsistöð á Hvanneyri og Deildartunguhver, þar sem Orkuveita Reykjavíkur bauð upp á hressingu. Hátíðarkvöldverður var haldinn í Hjálmakletti.

Tengla á öll erindi fundarins má nálgast hér á vef Samorku.

#orkakvenna

Orkuveita Reykjavíkur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur taka þátt í hátíðarhöldum vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna. Þau hafa ákveðið að blása til ljósmyndasamkeppni á Instagram fyrir ungt fólk á aldrinum 13 til 20 ára undir myllumerkinu #orkakvenna. Tilgangurinn er að vekja áhuga ungs fólks, sérstaklega kvenna, á iðnmenntun og iðnnámi og útrýma hugmyndum um staðalímyndir þegar kemur að vinnumarkaðnum en einnig til að vekja athygli á jafnréttisstefnu fyrirtækjanna.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðunni: www.orkakvenna.is, sem hefur verið opnuð til að halda utan um jafnréttisstarfið, en þar birtast einnig Instagram myndirnar.

Gagnaver í leit að staðsetningu; opinn fundur Landsvirkjunar 5 júní.

Föstudaginn 5. júni heldur Landsvirkjun opinn fund á Grandhótel, um staðarval fyrir gagnaver.

Fundurinn er áhugaverður öllum sem vilja skilja betur til hvaða atriða erlend fyrirtæki horfa þegar þau velja staðsetningu gagnavera og hverjar þarfir slíkra viðskiptavina eru. Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík á föstudaginn, þann 5. júní. Morgunveitingar hefjast kl. 8.30, formleg dagskrá hefst kl. 9.00 og stendur til 10.30.

Auðlindagarður á Reykjanesi

Fimmtudaginn 28. maí s.l. var haldinn opinn kynningarfundur í Hörpu, um starfssemi Auðlindagarðsins á Reykjanesi. Flutt voru afar fróðleg erindi um þá fjölbreyttu starfssemi sem orðið hefur til á svæðinu og tengjast öll á einn eða annan hátt orkuvinnslu HS Orku. Þekktast af þessum fyrirtækjum er Bláa Lónið, en til viðbótar hefur orðið til flóra fyrirtækja sem öll eiga tilveru sína að þakka fjölbreyttri nýtingu jarðvarma á skaganum. Meðal þess sem kynnt var, er nýútkomin skýrsla sem ráðgjafafyrirtækið GAMMA hefur gert um efnahags- og samfélagsleg áhrif Auðlindagarðsins. Til að kynna sér efni GAMMA-skýrslunar, smellið hér og til að kynna sér sögu og starfssemi Auðlindagarsins, þá smellið hér.

Fagfundur veitusviðs Samorku, Borgarnesi

Fagfundur veitusviðs Samorku verður haldinn á Hótel Borgarnesi dagana 28. og 29. maí næstkomandi. Að þessu sinni verður fjallað um málefni hita-, vatns- og fráveitna, auk þess sem fjallað verður um öryggismál, umhverfismál, jarðhita, laga- og regluumhverfi orku- og veitufyrirtækja o.fl. Nánari upplýsingar um dagskrá og fleira, má finna hér.

Framtíðaráhrif loftslagsbreytinga, opinn fundur Landsvirkjunar 22. maí

Flokkað í

Föstudaginn 22. maí býður Landsvirkjun til opins fundar um hnattrænar loftslagsbreytingar og hvernig fyrirtæki geta unnið gegn áhrifum þeirra. Fundurinn fer fram í Hörpu og hefst kl. 8:30. Fundinn ávarpa m.a. Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra, Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar, Halldór Björnsson veður- og haffræðingur hjá Veðurstofu Íslands og Halldór Þorgeirsson forstöðumaður stefnumörkunar hjá skrifstofu rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Sjá nánar hér á vef Landsvirkjunar.

Orkuveita Reykjavíkur tilnefnd til umhverfisverðlauna

Flokkað í

Orkuveita Reykjavíkur er á meðal þeirra sem tilnefnd eru til náttúru- og umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2015. Þema verðlaunanna í ár er losun gróðurhúsalofttegunda. Verðlaunin eru veitt fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem sett hefur gott fordæmi með þróun vöru eða uppfinningar eða öðrum skapandi aðgerðum sem stuðla að minni losun gróðurhúsalofttegunda á Norðurlöndum til framtíðar. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur.

Ertu að leita að þessu?