Haustviðburður VAFRÍ – Vatns- og fráveitufélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 8. október næstkomandi. Í ár verða Þingvellir heimsóttir og verður boðið upp á fræðslu um aðgerðir og áskoranir sem tengjast vatns- og fráveitum á svæðinu. Nánari upplýsingar um dagskrá ferðarinnar og skráningu má sjá hér að neðan:
Drög að dagskrá:
- 12:30 – Rúta leggur af stað frá bílaplani Orkuveitu Reykjavíkur
- 13:30-15:00 – Einar Sæmundsen, fræðslufulltrúi þjóðgarðsins á Þingvöllum, kynnir vatns- og fráveitur innan þjóðgarðsins og sumarbústaðasvæðisins í landi Kárastaða
- Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri OR, segir frá vatnsverndarmálum við Nesjavelli
- Stefnt er á að skoða fráveitumál við ION hótel
- Stefnt er að því að vera komin til baka á bílaplan Orkuveitu Reykjavíkur fyrir kl. 18
Skráning er í ferðina á vefslóðinni https://ugla.hi.is/K2/eydublad.php?sid=135&fid=7348
Orka náttúrunnar og Silicor Materials hafa undirritað samning sem hljóðar upp á sölu á 40 MW, og er þetta fyrsti stóriðjusamningur sem Orka náttúrunnar gerir. Silicor Materials hyggst reisa silikonverksmiðju á Grundartanga.
Sjá nánar hér á vef ON.
Líkt og undanfarin ár styrkir Jarðhitafélag Íslands háskólanema í jarðhitatengdu námi til að sækja fjölþjóðlega jarðhitaráðstefnu, að þessu sinni 2 styrki um allt að kr. 300 þúsund hvor styrkur.
Niðurstaða stjórnar JHFÍ var sú að styrkina hlytu Elvar Bjarkason, doktorsnemi í jarðhitaverkefni við University of Auckland í Nýja Sjálandi og Sigrún Brá Sverrisdóttir, meistaranemi í orkuverkfræði við Háskólann í Reykjavík.
Þriðjudaginn 22. september býður bresk-íslenska viðskiptaráðið til opins fundar um lagningu sæstrengs milli Íslands og Bretlands undir yfirskriftinni Interconnecting Interests. Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica og hann munu m.a. ávarpa Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og fulltrúar Greenpeace í Bretlandi og orkufyrirtækjanna PowerBridge og National Grid.
Sjá nánar um fundinn og skráningu hér.
Að frumkvæði sveitarfélagsins hefur Mannvit gert úttekt og lagt fram skýrslu um helstu virkjunarkosti í byggðarlaginu. Efni fundarins var fyrst og fremst kynning á skýrslunni, sem höfundar hennar önnuðust. Þá voru einnig flutt erindi um raforkuöryggi í Eyjafirði, raforkuflutning, raforkumarkaðinn, tækifæri fyrir smávirkjanir, beislun vindorkunnar og tengingar smávirkjana við orkukerfið.
Dagskrá fundarins og skýrslu Mannvits er að finna á heimasíðu Dalvíkurbyggðar: Smellið hér
Fundurinn var fjölsóttur og fram kom mikill áhugi fundarmanna um beislun orkunnar í héraði, en einnig voru skiptar skoðanir á flutningi raforku milli landshluta.
Samorka þakkar Dalvíkurbyggð fyrir það frumkvæði sem sveitarfélagið sýnir með gerð og kynningu þessa verkefnis.
Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum að mögulega verði dregið úr afhendingu á raforku, ef ástand í vatnsbúskapnum batnar ekki á næstu vikum.
Stóriðjufyrirtækin hafa, samkvæmt samningum, einn mánuð til þess að laga sig að breyttum aðstæðum. Enn ríkir óvissa um takmörkun orkuafhendingar, en miðað við meðalhorfur um fyllingu lóna og meðalrennsli í vetur má reikna með að orkusala Landsvirkjunar geti dregist saman um 3,5% í vetur.
Reynt verður að laga útfærslu aðgerðanna að þörfum viðskiptavina eins og mögulegt er, líkt og fram kemur í nánari umfjöllun hér á vef Landsvirkjunar.
Þann 2. október næstkomandi verður haldið á vegum Endurmenntunar HÍ námskeiðið: Blágrænar ofanvatnslausnir í byggð – Frá hugmynd að veruleika.
Námskeiðið mun fjalla um „nýjar leiðir við meðferð ofanvatns sem hafa verið innleiddar víða um heim. Þetta eru svokallaðar blágrænar eða sjálfbærar ofanvatnslausnir. Kostir þeirra eru öruggara veitukerfi, betra umhverfi í þéttbýli og heilbrigðari og sjálfbærari vatnsbúskapur“.
Stórum framkvæmdum fylgir óhjákvæmilegt rask þar sem sjónræn áhrif geta orðið umtalsverð. Landsvirkjun býður í samstarfi við Félag íslenskra landslagsarkitekta til opins fundar fimmtudaginn 3. september kl. 13:30 á Hilton Reykjavík Nordica, þar sem fjallað verður um hvernig skapa má jafnvægi milli landslags, landmótunar og orkunýtingar.
Sjá nánar hér á vef Landsvirkjunar.
Samorka mun á næsta ári, í samstarfi við norræn samtök vatnsveitna, halda á Íslandi 10. Norrænu drykkjarvatnsráðstefnuna (e. Nordic Drinking Water Conference).
Ráðstefnan verður haldin dagana 28.-30. september 2016 í salnum Silfurbergi í Hörpu. Aðildarfélagar í Samorku og almennt sérfræðingar á sviði vatnsveitna eru hvattir til að taka dagana frá og skoða hvort að mögulega hafi þeir áhugaverð verkefni, rannsóknir og fleira, sem þeir hefðu áhuga á að kynna á ráðstefnunni.
Frekari upplýsingar um ráðstefnuna verða kynntar seinna í haust.
Tenging yfir hálendið með öflugum flutningslínum til norðurs og austurs er besti valkosturinn til að byggja upp meginflutningskerfi raforku á Íslandi til framtíðar, með stöðugleika að leiðarljósi. Þetta er niðurstaða nýrrar kerfisáætlunar Landsnets.
Frestur til að gera athugasemdir við áætlunina og umhverfisskýrslu hennar er til 1. september 2015.
Sjá nánar hér á vef Landsnets.