Þriðjudaginn 9. janúar 2018 stendur Rannís, í samvinnu við GEORG og Iceland Geothermal, fyrir kynningarfundi um nýja rannsóknaráætlun Horizon 2020 í orkumálum, „Secure, Clean and Efficient Energy“. Á fundinum verður farið yfir áætlunina í heild sinni með sérstakri áherslu á þátt jarðvarma.
Dagskrá:
Skráning og kaffi kl. 9:15
1. Árangur Íslands í Orkuáætlun Horizon2020 og stuðningur Rannís við umsækjendur, Kristmundur Þór Ólafsson, Rannís.
2. Ný Orkuáætlun Horizon 2020 (Secure Clean and Efficient Energy),
Filippo Gagliardi, framkvæmdastjórn ESB.
3. Íslensk orkuverkefni og tækifæri íslenskra aðila í evrópsku samstarfi,
Hjalti Páll Ingólfsson, stjórnarnefndarfulltrúi fyrir orkuáætlun Horizon 2020.
Skráningar er óskað með því að fylla út form á heimasíðu GEORG.