Landsnet býður á opinn kynningarfund um kerfisáætlun þriðjudaginn 29. nóvember. Fundurinn, undir yfirskriftinni Kerfisáætlun 2016-2025: Innviðirnir okkar – leiðin að rafvæddri framtíð, verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica kl. 9-10.30.
DAGSKRÁ
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets setur fundinn
Leiðin að rafvæddri framtíð
Sverrir Jan Norðfjörð, framkvæmdastjóri Þróunar- og tæknisviðs Landsnets
Umhverfisáhrif kerfisáætlunar
Auður Magnúsdóttir, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf
Fundarstjóri: Kristján Kristjánsson, fjölmiðlamaður
Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 08.30.