Fjórða iðnbyltingin: Aftur til fortíðar?
4. október kl 9-11 í Origo höllinni Hlíðarenda
Fjórða iðnbyltingin mun þurrka út sum störf og skapa önnur ný.
En hvaða áhrif mun hún hafa á stöðu kynjanna á vinnumarkaðnum?
Spár sýna að ef konum fjölgar ekki nú þegar í iðn- og tækninámi gæti þeim fækkað mikið í orku-, veitu- og upplýsingatæknigeiranum.
Samorka og Origo bjóða til morgunverðarfundar til að ræða fjórðu iðnbyltinguna út frá þessu sjónarhorni og mikilvægi fjölbreytni í starfsliði fyrir öll fyrirtæki.
Dagskrá:
Verða kvennastéttir fjórðu iðnbyltingunni að bráð? – Snæbjörn Ingi Ingólfsson, viðskiptastjóri hjá Origo
Verður jöfnu kynjahlutfalli náð 2030 í orku- og veitugeiranum? – Erla Björg Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Norðurorku
Fjórða iðnbyltingin og jafnréttismál: Ógn eða tækifæri? – Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans
Pallborðsumræður:
Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku
Elín Gränz, stjórnarmaður í Vertonet, samtökum kvenna í upplýsingatækni
Íris Baldursdóttir, stjórnarmaður í Konum í orkumálum
Hildur Katrín Rafnsdóttir, stjórnarmaður í FNS, samtökum náms- og starfsráðgjafa
Fundarstjóri: Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku
Færir fjórða iðnbyltingin okkur tugi ára aftur í tímann hvað varðar jafnt kynjahlutfall á vinnustöðum?
Verður öll sú vinna sem lögð hefur verið í að jafna stöðu kynjanna í þessum atvinnugeirum fyrir gýg?
Eða er fjórða iðnbyltingin einmitt tækifæri til að jafna kynjahlutföll með breyttu verklagi?
Skráning: