fbpx

Fréttir

Aftur í átt til sáttar

Ljóst er að Alþingi fer með það vald að raða orkukostum í flokka rammaáætlunar. En forsenda sáttar um málið hlýtur að vera fólgin í því að Alþingi fylgi faglegum tillögum verkefnisstjórnar. Það var ekki gert í janúar 2013, heldur höfðu þá fyrst tólf og síðar sex kostir verið færðir niður listann, í átt frá orkunýtingu. Sú tillaga sem nú er til umræðu snýst um að hverfa aftur í átt að niðurstöðu verkefnisstjórnar 2. áfanga rammaáætlunar, sem byggði á faglegri vinnu til átta ára. Það væri stórt skref í átt til sáttar um málið. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Morgunblaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samorku.

Alþjóðlegur dagur salerna – 19. nóvember

Árið 2013 samþykkti allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna að 19. nóvember yrði skilgreindur sem alþjóðlegur dagur salerna. Samkvæmt nýjustu tölum frá UN water þá skortir yfir 2,5 milljarð einstaklinga fullnægjandi aðgengi að salernisaðstöðu. Heilbrigðisvandamálin vegna þessa eru eins og gefur að skilja gríðarleg. Samorka vill í tilefni dagsins vekja athygli á herferð UN Water til að taka á þessu máli og hvetja alla áhugasama til að taka þátt og hjálpa til. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu UN Water:

Rammaáætlun: Sex orkukostir fari aftur í nýtingarflokk

Samorka styður tillögu til þingsályktunar þess efnis að orkukosturinn Hvammsvirkjun verði færður úr biðflokki rammaáætlunar aftur í nýtingarflokk, þar sem hann var áður flokkaður fyrir afgreiðslu Alþingis í janúar 2013. Samorka beinir því jafnframt til Alþingis að ályktað verði um að snúa aftur til faglegrar niðurstöðu fyrri verkefnisstjórnar og færa alla þá sex orkukosti sem Alþingi færði úr nýtingarflokki í biðflokk, þvert á faglegar niðurstöður verkefnisstjórnar, til baka í nýtingarflokk.

Landsnet hefur mat á umhverfisáhrifum Sprengisandslínu

Landsnet hefur ákveðið að hefja undirbúning mats á umhverfisáhrifum Sprengisandslínu, 220 kV háspennulínu milli Suður- og Norðurlands. Því er ætlað að kanna nánar umhverfisáhrif línunnar og leggja mat á kosti um leiðarval og útfærslur. Þegar er gert ráð fyrir háspennulínu og vegi um þetta svæði í aðalskipulagi viðkomandi sveitarfélaga og einnig er gert ráð fyrir háspennulínu og vegi yfir Sprengisand í gildandi svæðisskipulagi Miðhálendis Íslands til 2015. Sjá nánar á vef Landsnets.

Nýir sæstrengir sagðir munu auka verðmætasköpun í Noregi

Nýir sæstrengir til Þýskalands og Bretlands munu stuðla að aukinni verðmætasköpun í Noregi, auka orkuöryggi Noregs og stuðla að aukinni notkun endurnýjanlegra orkugjafa í Evrópu, á kostnað brennslu mengandi jarðefnaeldsneytis. Þetta er mat Energi Norge, samtaka norskra orkufyrirtækja, á helstu áhrifum nýrra strengja sem ráðgert er að Norðmenn leggi til Bretlands og Þýskalands.

Ertu að leita að þessu?