Sérfræðingur í upplýsingaöflun og greiningum
Samorka óskar eftir að ráða drífandi einstakling sem býr yfir miklu frumkvæði, skipulögðum vinnubrögðum og getu til að sinna mikilvægum og spennandi verkefnum á sviði greininga. Um er að ræða skemmtilegt starf fyrir einstakling sem hefur áhuga og getu til að safna saman og greina hagtölur og ýmsar áhugaverðar upplýsingar sem varða orku- og veitustarfsemi á Íslandi og í nágrannalöndum okkar, og koma því til skila á mannamáli.
HELSTU VERKEFNI:
- Söfnun, greining og miðlun upplýsinga sem varða orku og veitustarfsemi, þ.m.t. umhverfis- og loftslagsmál.
- Greining á áhrifum breytinga á rekstrarumhverfi orku- og veitufyrirtækja.
- Skýr og greinargóð framsetning gagna og upplýsinga.
- Skipulagning og umsjón með framkvæmd opinna funda um málefni orku- og veitugeirans.
- Faglegur stuðningur við ýmis verkefni sem unnið er að hverju sinni.
- Eftirfylgni með nýrri stefnu samtakanna.
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. hagfræði eða verkfræði.
- Hæfni og áhugi á að greina upplýsingar og hagstærðir sem varða orku- og veitustarfsemi hér á landi og í nágrannalöndum.
- Færni í markvissri framsetningu upplýsinga jafnt skriflega, myndrænt og munnlega.
- Jákvæðni og mikil samskipta- og samstarfsfærni.
- Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Bæði konur og karlmenn eru hvött til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veita Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku (pall@samorka.is), og Ari Eyberg (ari@intellecta.is) í síma 511-1225. Umsókn óskast fyllt út á heimasíðu Intellecta og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 24. október. Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Samorka eru samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. Aðildarfélög Samorku eru um 50 talsins og með starfsemi um allt land. Hlutverk samtakanna er að starfrækja trúverðugan, fræðandi og jákvæðan vettvang um starfsemi orku- og veitufyrirtækja og styrkja þannig stöðu þeirra og rekstur.
Samtökin eru aðilar að Samtökum atvinnulífsins og eru staðsett í Húsi atvinnulífsins að Borgartúni 35. Í starfinu felst tækifæri til að vinna náið með ýmsum sérfræðingum aðildarfyrirtækja Samorku auk sérfræðinga annarra samtaka í Húsi atvinnulífsins.