Rafmagnsöryggissviðið flutt til Brunamálastofnunar.
Alþingi samþykkti í vikunni lög um flutning á Rafmagnsöryggissviði Neytendastofu til Brunamálastofnunar. Þessi breyting hefur verið alllengi í farvatninu. Hugmyndin var að rafmagnsöryggissviðið flyttist í hina nýju stofnun, Byggingastofnun, en frumvarp um heildarlög um Byggingastofnun hafa verið lengi í undirbúningi en eru enn ósamþykkt. Það hefur orðið að niðurstöðu að Brunamálastofnun taki þennan þátt að sér, að minnstakosti þangað til umrædd lög hljóta brautargengi.