Franz Árnason nýr formaður Samorku
Á aðalfundi Samorku var Franz Árnason, Norðurorku, kjörinn formaður stjórnar og tekur hann við formennsku af Friðrik Sophussyni, Landsvirkjun. Þórður Guðmundsson, Landsneti, kemur nýr í stjórn í stað Kristjáns Haraldssonar, Orkubúi Vestfjarða. Kristján er varamaður í nýrri stjórn og kemur þar inn í stað Páls Pálssonar, Skagafjarðarveitum. Ný stjórn á að öðru leyti eftir að skipta með sér verkum en hana skipa nú:
- Ásbjörn Blöndal, Selfossveitum
- Franz Árnason, Norðurorku, formaður
- Friðrik Sophusson, Landsvirkjun
- Guðmundur Þóroddsson, Orkuveitu Reykjavíkur
- Júlíus Jónsson, Hitaveitu Suðurnesja
- Tryggvi Þór Haraldsson, Rarik
- Þórður Guðmundsson, Landsneti
Varamenn:
- Dagur Jónsson, Vatnsveitu Hafnarfjarðar
- Hreinn Hjartarson, Orkuveitu Húsavíkur
- Kristján Haraldsson, Orkubúi Vestfjarða