Virkjunarkostir landsmanna eru fjölmargir með mismunandi stofnkostnað, rekstrarkostnað, orkuvinnslugetu, nýtingu og fleira. Vatnsaflsvirkjanir hafa almennt verið ódýrari í stofnkostnaði á hvert uppsett megavatt (MW) en á móti hafa jarðhitavirkjanir skilað hærri nýtingu. Flókið getur verið að leggja mat á hagkvæmni þegar um ólíka kosti er að ræða.
Samorka leggur hér fram aðferðarfræði og útreikning á mismunandi hagkvæmni virkjunarkosta sem til umfjöllunar eru í 3. áfanga rammaáætlunar. Aðferðarfræðin kallast LCOE, eða Levelized Cost of Energy. Hún er vel þekkt á alþjóðavettvangi í skýrslum um orkumál þó að ekki hafi hún verið notuð hingað til hér á landi. Með LCOE er hægt að nota „sömu mælistiku“ í samanburði ólíkra virkjunarkosta. Skýrsluna vann Kristján B. Ólafsson, rekstrarhagfræðingur.
Í fyrirliggjandi skýrslu þriðja áfanga rammaáætlunar, sem nú er í umsagnarferli, var einungis tekið tillit til niðurstaðna frá faghópum 1 og 2, sem fjalla um náttúru- og menningarminjar og auðlindanýtingu aðra en orkunýtingu. Ekki er stuðst við niðurstöður frá faghópum 3 og 4, sem áttu að fjalla um efnahags- og samfélagsleg áhrif af virkjanakostum. Að mati Samorku vantar mikið upp á ef ekki er tekið tillit til þeirra þátta. Þeir ættu að vera mikilvægur hluti af heildarmyndinni líkt og sjónarmið náttúruverndar og annarrar nýtingar á borð við ferðaþjónustu.
Skýrslan sýnir að allt að alls getur munað tugum, jafnvel yfir hundrað milljörðum króna, á samanlögðum stofnkostnaði við virkjanakosti í núgildandi nýtingarflokki annars vegar og ef valdir væru hagkvæmustu kostirnir hins vegar. Hún sýnir einnig að árlegur kostnaður við orkuframleiðslu er mörgum milljörðum króna meiri við kosti í núverandi orkunýtingarflokki en við hagkvæmustu uppröðun. Að sjálfsögðu koma fleiri sjónarmið en hagkvæmni virkjanakosta við sögu við röðun virkjunarkosta. Samorka ítrekar hins vegar áherslu á mikilvægi þess að jafnframt verði horft til hagkvæmni, sem og efnahags- og samfélagslegra áhrifa við röðun virkjunarkosta.
Samorka vonast til að skýrslan varpi ljósi á hvernig meta má hagkvæmni mismunandi virkjunarkosta sem til umfjöllunar eru í þriðja áfanga rammaáætlunar. Aðferðafræði LCOE getur komið að góðu gagni við frekari úrvinnslu, stefnumörkun og röðun virkjunarkosta.
Uppfærsla 11. júlí: Því miður skiluðu töflur á síðu 12 og 13 sér ekki rétt inn í skýrsluna. Uppfærða útgáfu af henni má finna hér: LCOE skýrsla (PDF 2 MB)
Hægt er að binda koltvísýring sem steintegund í basaltberglögunum við virkjun ON á Hellisheiði að 95 prósentum á tveimur árum en ekki öldum eða árþúsundum eins og áður var talið. Þetta kemur fram í grein í Science, sem er eitt útbreiddasta og þekktasta vísindatímarit heims. Greinin fjallar um CarbFix loftslagsverkefnið sem unnið hefur verið að við jarðgufuvirkjun Hellisheiðarvirkjun frá árinu 2007. Sjá nánar hér á vef ON.
75% ferðamanna segja vinnslu endurnýjanlegrar orku hafa haft jákvæð áhrif á upplifun sína af íslenskri náttúru og 93% segjast hafa tekið eftir orkuvinnslu með endurnýjanlegum orkugjöfum í heimsókn sinni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í könnun sem Gallup vann fyrir Landsvirkjun.
Að gefnu tilefni vill Samorka minna á gagnrýni á rannsóknir Aðalbjargar Kristbjörnsdóttur, doktorsnema í lýðheilsuvísindum, Thors Aspelund og Vilhjálms Rafnssonar, prófessora við Læknadeild HÍ, um tengsl á milli tíðni krabbameina og lengdar búsetu í sveitarfélögum sem nota jarðhitavatn á Íslandi og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum á síðustu árum.
Ólafur G. Flóvenz, jarðeðlisfræðingur og forstjóri ÍSOR og Helgi Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir í krabbameinslækningum við HÍ, sem eru meðal færustu fræðimanna þjóðarainnar á sviði jarðeðlisfræði og krabbameinslækninga, hafa ítrekað bent á ágalla við umræddar rannsóknir í gegnum tíðina. Meðal annars er aðferðafræðin gagnrýnd, bent á ósamræmi í vali á háhitasvæðum og að finna megi aðrar þekktar skýringar á aukinni tíðni tiltekinna krabbameina.
Ef notkun á hitaveituvatni yki áhættuna á að fá krabbamein, mætti búast við að nýgengi krabbameina væri hærra á Íslandi en í grannlöndunum, þar sem um 90% landsmanna hafa hitaveitu. Svo er ekki. Krabbameinsáhættan er áþekk á Íslandi og honum Norðurlöndunum, bæði fyrir öll krabbamein og þau einstöku krabbamein sem tiltekin eru í rannsóknum Aðalbjargar, Thors og Vilhjálms.
Hrefna Kristmannsdóttir og Ragna Karlsdóttir hlutu á dögunum brautryðjendaverðlaun alþjóðasamtakanna Women in Geothermal, WING, fyrir framlag sitt til útbreiðslu jarðhitanotkunar í heiminum. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhenti þeim verðlaunin í móttöku samtakanna á jarðhitaráðstefnunni Iceland Geothermal Conference, sem fram fór í Reykjavík dagana 26. -28. apríl.
Hrefna var fyrsta íslenska konan til að ljúka doktorsprófi í jarðfræði. Það gerði hún frá Oslóarháskóla árið 1970. Hún átti langan starfsferil sem jarðefnafræðingur á Orkustofnun og átti þátt í að þróa efnafræðilegar aðferðir við mat á jarðhitaholum sem nú er beitt við allar slíkar boranir. Hrefna hefur verið mikilvirk á vísindasviðinu og skrifað um 100 greinar sem birst hafa í vísindatímaritum.
Ragna Karlsdóttir er jarðeðlisfræðingur sem einnig starfaði lengi hjá Orkustofnun og nú síðari ár hjá ÍSOR. Þar hóf hún störf árið 1970 og hefur komið að rannsóknum, líkanagerð og auðlindamati á öllum þeim háhitasvæðum sem nýtt eru hér á landi og flestum lághitasvæðunum með einhverjum hætti.
Báðar hafa þær Ragna og Hrefna komið að starfi Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna, sem rekinn er hér á landi.
WING eru samtök sem hvetja til framgangs kvenna innan jarðhitageirans, styðja við konur sem þar starfa og leitast við að gera störf þeirra á þeim vettvangi sýnilegri. Samtökin voru stofnuð 2013.
Móttaka WING var haldin í félagi við Konur í orkumálum, sem eru samtök kvenna sem starfa við orkumál á Íslandi. Þau samtök eru líka ný af nálinni.
Auk iðnaðar- og viðskiptaráðherra ávarpaði Andrea Blair, forseti WING, samkomuna.
Ísland án jarðhita?
Fréttablaðsgrein Gústafs Adolfs Skúlasonar:
Margfalt hærri reikningur fyrir húshitun. Engin snjóbræðsla í gangstéttum, gervigrasvöllum, eða bílastæðum. Engar knattspyrnuhallir. Miklu dýrara innlent grænmeti og/eða afar lítil innlend grænmetisframleiðsla. Fáar sundlaugar og litlar. Langar sturtuferðir mikill lúxus. Gluggar lítið opnaðir á veturna. Margfalt fleiri olíutankar. Margföld losun gróðurhúsalofttegunda frá Íslandi.
Um 700 manns frá 46 löndum sóttu nýafstaðna ráðstefnu jarðhitaklasans í Hörpu, þar sem sumt af framangreindu kom fram þegar fyrirlesarar reyndu að sjá fyrir sér Ísland án nýtingar jarðhitaauðlindarinnar. Ljóst er að lífskjör væru hér mun lakari í hefðbundnum efnahagslegum skilningi. Hið sama má segja um ýmis lífsgæði sem okkur þykja sjálfsögð í dag.
Einn Landsspítali á ári
Saga jarðhitanýtingar til húshitunar nær yfir 100 ár hérlendis. Mikið átak var gert í uppbyggingu hitaveitna í kjölfar olíukreppunnar snemma á áttunda áratugnum, en þá var olía víða notuð við húshitun hérlendis. Samanburðurinn við olíu er þess vegna áhugaverður. Ef við værum almennt að nýta olíu til húshitunar í dag, í stað jarðhitans, þyrfti að flytja hér inn olíu fyrir um 88 milljarða króna á ári. Það er vel ríflega nýr Landsspítali. Á hverju ári. Að auki værum við í stað grænnar orkunýtingar að losa gróðurhúsalofttegundir á við alla losun Kaupmannahafnar og helmingi betur.
Milljón á ári per heimili
Ef við horfum á tölurnar út frá beinum kostnaði hvers heimilis, að frádregnum dæmigerðum húshitunarkostnaði hérlendis, væri viðbótarkostnaðurinn um ein milljón króna á ári á dæmigert heimili. Milljón á ári.
Tölurnar hér að framan miðast við þá forsendu að við værum að nýta jafn mikla orku með brennslu olíu og jarðhitinn skilar okkur í dag. Auðvitað er sú forsenda umdeilanleg. Við myndum áreiðanlega nota miklu minni orku, en þó gegn mun hærri kostnaði. Húsin væru ekki jafn hlý. Sturtuferðirnar styttri og jafnvel færri. Knattspyrnulandsliðin okkar ekki að ná sama árangri. Andrúmsloftið mengað af olíureyk. Og lífskjörin verri.
Alþjóðajarðhitasambandið, IGA, hefur komið á fót sérstökum miðlægum gagnagrunni fyrir sérfræðinga í jarðhita. Gagnagrunninum var ýtt úr vör á IGC 2016 ráðstefnunni í Hörpu í gær. Gagnagrunninum, sem kallast Expert Pool, er ætlað að auðvelda fyrirtækjum eða alþjóðasamtökum að leita að sérfræðingum, starfsfólki eða ráðgjöfum í málefnum jarðhita og þannig einnig bjóða upp á starfstækifæri fyrir alla þá sem starfa í geiranum.
Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir slíkum vettvangi aukist hjá IGA og ætti þessi nýi gagnagrunnur að vera gott tækifæri fyrir íslenska sérþekkingu í jarðhitageiranum, sem er með þeirri bestu sem gerist í heiminum. Hægt er að skrá sig í grunninn á heimasíðu Alþjóðajarðhitasambandsins.
Fjallað verður um jarðvarma í fjölbreyttum skilningi á ráðstefnu íslenska jarðvarmaklasans næstu daga í Reykjavík, Iceland Geothermal Conference. Áhersla er lögð á kosti þess að nýta jarðhita og margvíslegum ávinningi af því. Hægt er að kynna sér ráðstefnuna og dagskrá hér.
Orkutengd ferðaþjónusta á Íslandi fékk óvænta kynningu á dögunum þegar Kim og Kourtney Kardashian létu sjá sig í Reykjavík öllum að óvörum ásamt rapparanum Kanye West.
Þær systur ásamt föruneyti gerðu sér ferð á tómatabýlið Friðheima í Reykholti í Biskupstungum. Fjölmargar fréttastofur hafa fjallað um heimsóknina þar sem þau skoðuðu tómataplöntur og býflugur og gæddu sér á afurðum þeirra. Hægt er að sjá umfjöllunina og myndbönd frá heimsókninni á eftirtöldum miðlum en listinn er ekki tæmandi: Daily Mail, Entertainment Tonight, E! Online, People, Hollywoodlife, US Magazine og fleiri.
Kim, Kourtney og félagar heimsóttu einnig Gullfoss og Geysi, en íslenska hveralyktin fékk alveg sérstaka umfjöllun þar sem Kim og eiginmaður hennar Kanye héldu að hún væri prumpulykt bílstjórans þeirra. Iceland Monitor á mbl.is hefur þó reynt að koma hinu rétta á framfæri.
Víst má ætla að ferðalag þeirra sé gríðarleg landkynning fyrir Ísland og ekki síst orkutengda ferðaþjónustu eins og Geysi og tómatabýlið Friðheima, því milljónir manna fylgjast grannt með systrunum Kim og Kourtney á samfélagsmiðlum. Á Instagram hefur Kim tæplega 68 milljónir fylgjenda og Kourtney 38 milljónir, á Twitter fylgja 44 milljónir Kim að og Kourtney 20 milljónir.
Kim Kardashian er ein stærsta stjarna sem sprottið hefur upp úr raunveruleikaþáttum í Bandaríkjunum og um heim allan. Þátturinn Keeping Up With The Kardashians hefur verið sýndur á sjónvarpsstöðinni E! við miklar vinsældir frá árinu 2007 og fjallar um líf hinnar litríku Kardashian fjölskyldu og Kim er þar ein sex systkina. Kim Kardashian hefur verið dugleg að halda sér í sviðsljósinu og þykir hafa gott viðskiptavit, en heildartekjur hennar voru um 53 milljónir dollara árið 2015. Hún er gift einum vinsælasta rappara í heimi, Kanye West, en ástæða heimsóknarinnar til Íslands er talin vera sú að hann ætli að taka upp tónlistarmyndband hér á landi. Einnig gæti ástæðan verið afmæli systur Kim, Kourtney, sem varð 37 ára í gær, 18. apríl.
En hver er eiginlega Kim Kardashian? Um það má lesa hér á mbl.is.
Framlag orku- og veitufyrirtækja til íslensks samfélags, hvort sem um er að ræða fjárhagslegan ávinning eða minni losun gróðurhúsalofttegunda, er umtalsvert. Bjarni Bjarnason formaður Samorku fór yfir ávinning af orku- og veitustarfsemi á ársfundi samtakanna 2016.
Án endurnýjanlegrar orku væri CO2 losun Íslendinga töluvert meiri. Heildarlosun Íslands í dag er um 4,6 milljón tonn ár hvert og hefur verið á svipuðu róli allt frá árinu 1990. Ef hitaveitu nyti ekki við og við þyrftum að nota olíu til að hita húsin okkar, þá væri losunin tæp sex milljón tonn á ári. Ef rafmagn væri framleitt með öðrum hætti en með endurnýjanlegri orku, þá væri losunin um átta milljón tonn. Þar er stóriðja undanskilin.
Fjárhagslegur ávinningur fyrir heimilin í landinu er einnig umtalsverður. Mánaðarlegur orku- og veitureikningur fjölskyldu sem býr í Osló er meira en tvöfalt hærri en fjölskyldu í Reykjavík, miðað við algenga notkun í báðum borgum, og tæplega þrefalt hærri hjá fjölskyldu í Kaupmannahöfn.
Bjarni talaði einnig um skipulag og áherslur Samorku, en eftir stefnumótun á árinu 2015 var ákveðið að leggja meiri áherslu á ákveðna þætti í starfseminni, líkt og kynningarmál og almenna upplýsingagjöf til samfélagsins. Þá fór hann yfir samsetningu fyrirtækjanna sem standa að Samorku og kynja- og aldursskiptingu starfsmanna innan þeirra, en Bjarni lagði mikla áherslu á að fjölga konum innan orkugeirans.
Glærur frá ávarpi Bjarna má sjá hér.