Til að heiðra minningu breska jarðfræðingsins George P.L. Walkers og vekja áhuga á jarðfræði Austurlands, mun Breiðdalssetur standa fyrir málþingi um jarðfræði Austurlands helgina 30.-31. ágúst 2014. Markmið málþingsins er að kynna fyrir almenningi sem og fræðimönnum núverandi rannsóknir á jarðlagastafla Austurlands og hagnýtingu hennar í dag (t.d. jarðhitaleit og jarðgangnagerð). Sjá nánar á vef Breiðdalsseturs
Dagana 27.-29. ágúst stendur Orkustofnun fyrir norrænni ráðstefnu í Hörpu um orkustjórnun, þar sem m.a. verður fjallað um varmadælur, orku í byggingum, mismunandi orkugjafa í hitaveitum, hitaveitur á Norðurlöndum, í Ungverjalandi o.fl. Ráðstefnan fer fram á ensku. Sjá nánar hér á vef Orkustofnunar.
9. Norræna vatnsveituráðstefnan fór fram í Helsinki þann 2.-4. júní síðastliðinn. Sigurjón Norberg Kjærnested framkvæmdastjóri veitusviðs Samorku sótti ráðstefnuna fyrir hönd Samorku, ásamt því að sitja í skipulagsnefnd fyrir ráðstefnuna.
Erindin frá ráðstefnunni má nálgast hér:
Ráðstefnunni var skipt upp í eftirfarandi málstofur:
- Management
- Microbial quality
- Microbiological risk analysis
- NOM and membranes
- Water Safety Plans
- Safety of water supply
- Treatment
- Distribution
Vel var mætt á ráðstefnuna (yfir 200 manns) og henni gerður góður rómur meðal þátttakenda.
Í lok ráðstefnunnar bauð Sigurjón, fyrir hönd Samorku, þátttakendum að sækja Ísland heim þegar ráðstefnan verður haldin á okkar vegum árið 2016.
Tilraunarekstur lofthreinsistöðvar við Hellisheiðarvirkjun er hafinn, eftir nokkurra vikna gangsetningarprófanir. Þar með er niðurdæling brennisteinsvetnis frá virkjuninni hafin. Gert er ráð fyrir að stöðin hreinsi 15-20% af brennisteinsvetninu og þar með minnka líkur á því að styrkur þess í andrúmslofti fari yfir mörk í byggð. Sjá nánar á vef Orkuveitu Reykjavíkur.
Ef horft er samantekið til allra sex dreifiveitna raforku á Íslandi er meirihluti kerfisins á lágri spennu (33 kV og minna, alls 11.267 km) nú þegar í formi jarðstrengja, eða 54%, og nær allar nýframkvæmdir og viðhald á kerfinu er lagt í jarðstrengjum. Ef horft er til kerfisins í heild (14.483 km) eru hins vegar 57% í loftlínum, en 96% kerfisins á hærri spennu (66 til 220 kV) er í loftlínum. Þetta kom m.a. fram í erindi Péturs E. Þórðarsonar hjá RARIK á vorfundi Samorku (sjá glæru 13).
Alls spannar flutnings- og dreifikerfi raforku 14.483 km. Frá því um og uppúr 1980 hafa aðstæður breyst verulega hvað varðar gæði jarðstrengja og kostnað við lagningu þeirra, á lágri spennu. Öðru máli gegnir enn um línur og strengi á hærri spennu, en alla jafna er miklum mun kostnaðarsamara að leggja slík kerfi í jörðu auk þess sem tæknilegar áskoranir geta verið meiri og umhverfisrask raunar einnig (sbr. þegar grafa þarf nokkurra metra breiða skurði gegnum hraun). Landsnet, sem rekur flutningskerfi raforku (á hárri spennu), horfir þess vegna til Alþingis um leiðsögn varðandi viðmið um val milli loftlína og jarðstrengja. Samkvæmt raforkulögum er fyrirtækinu ætlað að byggja flutningskerfið upp með hagkvæmni að leiðarljósi.
Allar líkur virðast hins vegar á því að kostnaður muni fara lækkandi á lagningu a.m.k. 66 kV og væntanlega 132 kV jarðstrengja, í allnáinni framtíð.
Alls tóku hátt í 400 manns þátt í vel heppnuðum Vorfundi Samorku sem haldinn var í Hofi á Akureyri dagana 14.-15. maí. Iðnaðarráðherra ávarpaði fundinn og flutt voru rúmlega 50 erindi um starfsumhverfi og ýmis viðfangsefni orku- og veitufyrirtækja. Samhliða fundinum kynntu jafnframt 22 fyrirtæki vörur sínar og þjónustu. Erindi fundarins má nálgast hér á vef Samorku.

Nauðsynlegt er að styrkja meginflutningskerfi raforku á Íslandi, m.a. tengingar milli Norðurlands og Suðurlands. Flestar eða allar aðgerðir í því skyni myndu hafa í för með sér áhrif á umhverfið en mat á umhverfisáhrifum leiðir í ljós að styrking byggðalínuhringsins er líklegri til að hafa neikvæð áhrif á umhverfið en hálendislína. Sjá nánar á vef Landsnets.
Innrennsli til miðlunarlóna Landsvirkjunar fer nú vaxandi og telur fyrirtækið nú óhætt að hefja á ný afhendingu til þeirra viðskiptavina sem hafa þurft að sæta skertri afhendingu. Þeim er nú heimilt að auka notkun sína á rafmagni sem nemur helmingi þess sem skert var og vonast er til að síðar í maímánuði verði hægt að aflétta skerðingum að fullu. Sjá nánar á vef Landsvirkjunar.