Í ár eru árs- og umhverfisskýrslur fyrirtækisins í fyrsta sinn sameinaðar og þar með birtist grænt bókhald fyrirtækisins nú í ársskýrslunni, ásamt annarri ítarlegri umfjöllun um umhverfismál. Með ársskýrslunni er leitast við að auðvelda almenningi að kynna sér fyrirtækið; afkomu þess, umhverfisvöktun og aðra starfsemi.
Þetta er fjórða árið í röð sem ársskýrslan kemur eingöngu út á rafrænu formi, en skýrslurnar hafa fengið fjölda tilnefninga og verðlaun fyrir hönnun hér á landi og erlendis. Slóðin á skýrsluna er slóðin er arsskyrsla2016.landsvirkjun.is.
Sem fyrri ár eru í skýrslunni fjölmörg myndbönd, til dæmis um framkvæmdir við Þeistareyki og Búrfellsvirkjun, virkjunarkosti og auðlindir. Þá má einnig lesa ávarp forstjóra og stjórnarformanns.
Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2016.
Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.
Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en föstudaginn 17. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið postur@uar.is eða með pósti á heimilisfang ráðuneytisins, Skuggasund 1, 101 Reykjavík.
Kuðungurinn er viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála sem veitt er árlega. Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Nánari upplýsingar um Kuðunginn má sjá á heimasíðu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.
Orka náttúrunnar hlaut í dag viðurkenningu sem það raforkusölufyrirtæki í landinu sem býr við mesta ánægju viðskiptavina sinna.
Bjarni Már Júlíusson framkvæmdastjóri ON tók við viðurkenningarskjali þessa efnis þegar niðurstaða Íslensku ánægjuvogarinnar 2016 voru kynntar. Bjarni Már sagði við það tækifæri að fyrirtækið legði sérstaka áherslu á gagnlega upplýsingagjöf í öllum samskiptum við viðskiptavini og tiltók þá nýjung að nú geta rafbílaeigendur sótt sér upplýsingar um stöðu hraðhleðslustöðva ON í gegnum smáforrit fyrir farsíma.
Markmið Íslensku ánægjuvogarinnar er að gera samræmdar og óháðar mælingar á ánægju viðskiptavina og gera niðurstöðurnar opinberar. Mælingar eru einnig gerðar á nokkrum öðrum þáttum sem hafa áhrif á ánægjuna, svo sem ímynd, mati viðskiptavina á gæðum og tryggð viðskiptavina við viðkomandi fyrirtæki.
ON og áður Orkuveita Reykjavíkur hafa tekið þátt í Íslensku ánægjuvoginni um árabil. Þetta er í fyrsta sinn sem fyrirtækin lenda í fyrsta sæti í þessari keppni um ánægðustu viðskiptavinina.
Orka náttúrunnar, sem er eitt af þremur dótturfyrirtækjum Orkuveitu Reykjavíkur, selur rafmagn um allt land. Rafmagnið er framleitt, ásamt heitu vatni fyrir höfuðborgarsvæðið, í virkjunum ON á Nesjavöllum og Hellisheiði. ON tók til starfa 1. janúar 2014 og er því nýorðið 3ja ára gamalt.
Landsnet og Landsvirkjun hafa gert samning um kaup og sölu á reiðuafli. Um er að ræða 40 MW af alls 100 MW reiðuafli sem Landsvirkjun hefur selt Landsneti á undanförnum árum. Nýi samningurinn tekur við af eldri samningi sem gerður var árið 2005.
Reiðuafl er afl sem notað er til þess að stýra tíðni flutningskerfisins með því að bregðast á fljótvirkan og sjálfvirkan hátt við sveiflum í notkun og framleiðslu raforku, en ómögulegt er að sjá nákvæmlega fyrir slíkar sveiflur.
Reiðuaflssamningar milli fyrirtækjanna eru þrír. Sá sem nú er endurnýjaður felur í sér 30 MW afl frá stöðvum á Þjórsársvæði og 10 MW afl frá Blöndustöð. Hinir samningarnir eru 30 MW hvor, frá Fljótsdalsstöð og Þjórsársvæði.
Tilgangur samningsins er að tryggja þennan lögboðna hluta kerfisþjónustu Landsnets sem er nauðsynlegur til þess að halda uppi gæðum rafmagns um land allt.
Breyttar aðstæður og þrengri aflstaða
Nýting íslenska raforkuvinnslukerfisins eykst stöðugt og eftirspurn eftir orku er meiri en framboð. Verð í hinum nýja samningi tekur mið af nýgerðum samningum Landsvirkjunar við sölufyrirtæki raforku og byggir m.a. á áætluðum kostnaði við fjárfestingu í auknu afli í raforkukerfinu við núverandi aðstæður.
Landsnet mun birta reiðuaflssamninginn á heimasíðu sinni.
Lögmannsstofan BBA hefur gefið út handbókina „Geothermal Transparency Guide“. Í bókinni er veitt yfirsýn yfir helstu atriði jarðhitalöggjafar er varða rannsóknir, nýtingu og framleiðslu á raforku með jarðhita í 16 löndum, þ.m.t. á Íslandi. Löndin sem fjallað er um í bókinni eiga það sammerkt að nýta jarðhita til raforkuvinnslu nú þegar eða hafa möguleika og áhuga á slíkri nýtingu.
Markmið útgáfunnar er að auka gagnsæi og þekkingu á lagaumhverfi umræddra ríkja hvað varðar aðgang að auðlindum og önnur réttindi og skyldur aðila, bæði opinberra aðila og einkaaðila. Við vinnslu bókarinnar fékk BBA til liðs við sig lögfræðistofur í hverju ríki fyrir sig til að geta lýst regluverki jarðvarma í hverjum stað.
Handbókin er án endurgjalds og má finna á heimasíðu BBA og einnig eftir óskum á bókarformi. Nánari upplýsingar beinist til ritstjóra bókarinnar, Hörpu Pétursdóttur, í netfangið harpa@bba.is.
Samorka mun koma 160 sólarorkulömpum til Kendu Bay í Kenýa, Afríku í samstarfi við GIVEWATTS og skipta þar með út heilsuspillandi steinolíulömpum fyrir endurnýjanlegan orkugjafa.
Ráðist var í verkefni í tilefni af degi rafmagnsins sem haldinn var hátíðlegur mánudaginn 23. janúar. Tilgangurinn með deginum er að vekja athygli á mikilvægi rafmagns í samfélaginu, í leik og starfi og þeim hreina endurnýjanlega orkugjafa sem Íslendingar hafa aðgang að á hverjum degi, ólíkt mörgum öðrum þjóðum. SAMORKA biðlaði til almennings um að vekja athygli á verkefninu með því að merkja mynd með #sendustraum á samfélagsmiðlum.
Um það bil 800 manns í bænum Kendu Bay munu því njóta góðs af degi rafmagnsins á Íslandi, þar sem að meðaltali fimm einstaklingar njóta góðs af hverjum lampa. Sólarorkulampi gefur næga birtu til að halda áfram daglegu amstri eftir að sólin er sest án þess að heimilisfólk hafi áhyggjur af heilsufari eða fjárhag. Að auki gefur hann næga orku svo hægt sé að hlaða farsíma.
Hægt verður að fylgjast með framvindu verkefnsins í nafni SAMORKU á heimasíðu GIVEWATTS þegar fram líða stundir.
GIVEWATTS eru samtök sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni (non-profit organization) og sérhæfa sig í heimilistækjum sem ganga fyrir endurnýjanlegri orku. Í lok árs 2016 hafði GIVEWATTS dreift rúmlega 25 þúsund lömpum til heimila og skóla í Kenýa og Tansaníu.
Hægt er að skoða þær myndir sem merktar voru #sendustraum á Instagram. Til gamans má einnig benda á aðrar merkingar sem notaðar eru á Norðurlöndunum á degi rafmagnsins, eins og #Elensdag í Svíþjóð og #Sähkönpäivä í Finnlandi, en dagur rafmagnsins hefur haldinn um nokkurra ára skeið í Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Finnlandi.
Atvinnu- og nýsköpunarhelgin verður haldin á Akureyri helgina 3.- 5. febrúar. Verkefnið er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og atvinnulífins og snýst um að virkja fólk til athafna. Markmiðið er að fá alla áhugasama, 18 ára og eldri, til að vinna saman að nýjum og gömlum hugmyndum sem gætu endað sem fyrirtaks viðskiptaáætlun eða atvinnutækifæri. Verðlaun verða svo veitt í nokkrum flokkum.
Verðlaun fyrir bestu hugmyndina eru 1 milljón króna, en þar að auki ætlar Eimur að veita sérstök verðlaun fyrir besta orkutengda verkefnið að upphæð 500 þúsund.
Orkusalan verður aðalbakhjarl Vetrarhátíðar í Reykjavík í ár, en samstarfssamningur fyrirtækisins og Höfuðborgarstofu var undirritaður á dögunum.
Vetrarhátíð í Reykjavík verður haldin í 16. sinn dagana 2. – 5. febrúar. Megintilgangur Vetrarhátíðar er að skemmta fólki á höfuðborgarsvæðinu og gefa því tækifæri til að njóta ókeypis viðburða á sviði menningar, lista, íþrótta og útiveru í eigin sveitarfélagi og/eða heimsækja nágranna sína í nærliggjandi sveitarfélagi.
Norðurljósalitirnir, grænn og fjólublár eru einkennislitir Vetrarhátíðar og verða á þriðja tug bygginga á höfuðborgarsvæðinu upplýstar auk ljóslistaverka á þekktum byggingum á höfuðborgarsvæðinu.
Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri Orkusölunnar, segir samninginn gera fyrirtækinu kleift að styðja við menningarlífið á höfuðborgarsvæðinu þar sem ljós og myrkur spili lykilhlutverk en einnig eigi hátíðin vel við hlutverk Orkusölunnar um að koma höfuðborgarbúum í stuð!
HS Orka verður bakhjarl samtakanna Konur í orkumálum, en skrifað var undir samninginn á dögunum. Samningurinn er til tveggja ára.
Haft er eftir Ásgeiri Margeirssyni, forstjóra HS Orku á heimasíðu fyrirtækisins, að það sé nauðsynlegt að auka hlut kvenna í orkugeiranum og að HS Orka sé stolt af því að vera bakhjarl þessa mikilvæga félags. Jafnframt segist hann bjartsýnn á að fleiri konur sæki í orkuiðnaðinn á komandi árum.
Hvernig væri lífið án rafmagns? Í nútíma samfélagi er svarið við þeirri spurningu líklega: Óhugsandi. Við tökum því sem sjálfsögðum hlut á hverjum degi. Langt skammdegið hefur engin áhrif á okkar daglega líf og við njótum þeirra forréttinda að orkan okkar er ódýr og um leið hrein, þar sem nær öll raforkuframleiðsla á Íslandi er með endurnýjanlegum hætti.
Stór hluti mannkyns býr við allt annan veruleika.
1,3 milljarður manna býr við takmarkað aðgengi að rafmagni. Steinolía er til dæmis aðalorkugjafi heimila í fjölmörgum löndum Afríku. Olían er dýr og gufurnar frá henni eru skaðlegar, sérstaklega börnum. Þrátt fyrir það eiga margar fjölskyldur ekki annan kost eftir að sólin er sest en birtu frá steinolíulampa til að geta athafnað sig við einföld heimilisstörf og börnin við heimanám.
Dagur rafmagnsins hefur verið haldinn hátíðlegur þann 23. janúar á Norðurlöndunum um nokkurra ára skeið. Honum er ætlað að minna á að rafmagn er ekki sjálfgefið og að við gefum því stóra hlutverki sem það spilar í lífi okkar meiri gaum. Um leið er tilvalið að láta gott af sér leiða.
Í tilefni af degi rafmagnsins ætlar SAMORKA, í samstarfi við sænsk-afríska félagið Givewatts, að hjálpa bæjarbúum í Kendu Bay í Kenýa að skipta yfir í endurnýjanlegan orkugjafa, líkt og þá sem við búum við hér á landi, í formi sólarorkulampa. Sólarorkulampinn gefur góða birtu fyrir heimili og skóla og hægt er að nota hann til að hlaða farsíma. Hann gefur kost á betri heilsu, hjálpar börnum að ná markmiðum sínum í námi og ýtir undir hraðari þróun samfélagsins. Að auki leggjum við okkar af mörkum í að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis í heiminum – margt smátt gerir eitt stórt.
Taktu þátt í degi rafmagnsins með okkur. Sendu straum þangað sem þörfin er mest með því að deila mynd af gildi rafmagns í þínu daglega lífi á Facebook/Instagram og merktu hana #sendustraum. Fyrir hverja mynd sem berst leggur SAMORKA 300 kr. til verkefnisins. Markmiðið er að koma yfir 100 sólarorkulömpum til fjölskyldna í Kendu Bay.
Til hamingju öll með dag rafmagnsins.
(Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 23. janúar 2017)