Flutningsgjald á raforku til stórnotenda á Íslandi er undir meðaltali í Evrópu, eða rúmar fimm evrur á megavattstund (MWst). Meðaltalið er rúmlega sjö evrur á megavattstund (MWst). Hæstu flutningsgjöldin eru á Kýpur, eða rúmar 16 evrur. Þetta kemur fram í nýjustu tölum Evrópusamtaka flutningsfyrirtækja, ENTSOE-E.
Að mati Samorku er þetta vel ásættanleg staða, sérstaklega í ljósi þess að landið er strjálbýlt og línuleiðir víða krefjandi. Eftirspurnin eftir raforku er meiri en framboðið hérlendis.
Ísland er langt undir meðaltali þegar skoðað er hlutfall kerfisþjónustu af flutningsgjaldinu. Hér á landi eru hlutfallið tæplega 5% en meðaltalið í öllum samanburðarhópnum er rúmlega 30%. Kerfisþjónusta er sú þjónusta sem innt er af hendi til að tryggja gæði raforku og öruggan rekstur flutnings- og dreifikerfis.
Orkuöryggi var lykilhugtakið í ræðu Helga Jóhannessonar, formanns Samorku, við upphaf um 150 manna fagfundar samtakanna í Reykjavík í dag. Helgi vakti m.a. athygli á því að stöndug iðnfyrirtæki á Norðurlandi geti ekki stækkað starfsemi sína og fiskimjölsverksmiðjur á Austurlandi ekki skipt úr olíubræðslu í vistvæna raforku. Þá ræddi hann skerðingar í raforkuafhendingu, vaxandi eftirspurn eftir raforku en lítið framboð og sagði suma af hagkvæmustu virkjanakostunum hafna í verndarflokki rammaáætlunar. Helgi sagði óljóst hver ef nokkur bæri ábyrgð á að landsmenn fái ávallt nægt rafmagn til almennra heimilisnota, eða að þörfum atvinnulífsins væri sinnt:
„Við upplifum mikla eftirspurn eftir raforku en lítið framboð sem enginn vaktar. Flutningskerfi í knýjandi uppbyggingarþörf sem erfitt er að fá heimildir til að mæta. Og ferli rammaáætlunar sem horfir ekki til hagkvæmnissjónarmiða og samfélagslegra áhrifa, eins og lögin kveða þó skýrt á um að þar beri að gera. Orkuöryggi er nauðsynleg grunnstoð hvers þjóðfélags. Hér á landi þrengir að því úr ýmsum áttum og við ræðum hugtakið orkuöryggi sjaldan eða aldrei eitt og sér á eigin forsendum. Því þarf að breyta“ sagði Helgi m.a.
Fagfundur raforkumála, sem halda átti á Ísafirði dagana 26. og 27. maí, hefur verið færður til Reykjavíkur vegna slæmra horfa með flugsamgöngur. Fundurinn verður á Grand Hótel Reykjavík og hefst dagskráin með skráningu kl. 13:45 fimmtudaginn 26. maí. Fundarammann má sjá hér að neðan en fulla dagskrá fundarins má skoða hér.
Fimmtudagur, 26. maí:
13.30-14.00 Skráning
14.00-16.00 Fundur
16.00-16.30 Kaffihlé
16.30-19.00 Fundur
19.00- Kvöldverður í salnum framan við Gullteig, standandi boð
Föstudagur, 27. maí:
Fundur 9-17, sjá dagskrá.
Þeir sem hyggjast afboða sig eða breyta skráningu sinni vinsamlegast hafið samband við Guðfinn, gudfinnur@samorka.is.
Rafmagnsreikningur íslenskra heimila er sá langlægsti í Vestur-Evrópu, eða um 6.200 krónur á mánuði sé miðað við dæmigert heimili. Til samanburðar má nefna að sambærilegt danskt heimili greiðir 14.800 krónur á mánuði. Sé miðað við lönd innan EES greiða heimili í Búlgaríu og Ungverjalandi lægri reikning en á Íslandi og í Litháen er hann jafnhár.
Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Eurostat fyrir árið 2015 og miðast við heildarreikning, þ.e. raforku, skatta, flutning og dreifingu.
Sé rafmagnreikningurinn sundurliðaður má sjá að skattar á raforkunotkun eru með lægsta móti hérlendis. Athygli vekur að í Danmörku, þar sem skattar eru hæstir á raforkunotkun, er oft um að ræða skatta á brennslu jarðefnaeldsneyta. Þeir eru svo nýttir til niðurgreiðslu á framleiðslu raforku með endurnýjanlegum orkugjöfum. Hér á landi eru engar slíkar niðurgreiðslur til staðar, enda öll raforkuvinnsla byggð á endurnýjanlegum orkugjöfum.
Kostnaður við flutning og dreifingu raforku á Íslandi er nálægt meðaltalskostnaði í Evrópu, þrátt fyrir strjálbýli og krefjandi línuleiðir víða. Dæmigert íslenskt heimili borgar 3.100 krónur á mánuði fyrir flutning og dreifingu raforku á meðan sambærilegt evrópskt heimili greiðir til þess 2.600 krónur.
Norðmenn búa nú við ódýrustu raforkuna, sem er breyting frá því sem verið hefur og skýrist meðal annars af gengi norsku krónunnar, sem veiktist töluvert árið 2015. Íslendingar borga næstminnst fyrir raforku.
Nokkur umræða hefur að undanförnu verið um dæmi þess að atvinnurekendur virði ekki kjarasamnings- og lögbundin réttindi starfsfólks, sér í lagi þegar í hlut á erlent starfsfólk sem er hér við störf vegna tímabundinna verkefna.
Stjórn Samorku hvetur öll aðildarfyrirtæki samtakanna til að tryggja að í verksamningum og samningum við birgja séu ákvæði sem geri verkkaupum kleift að grípa til aðgerða ef í ljós kemur að verktakar, undirverktakar eða birgjar virði ekki í hvívetna ákvæði kjarasamninga og vinnumarkaðslöggjafar. Engum á að líðast slík framkoma og undirboð á íslenskum vinnumarkaði.
Landsvirkjun og Norðurál hafa náð samkomulagi um að endurnýja raforkusamning fyrirtækjanna fyrir 161 MW. Endurnýjaður samningur tekur gildi í nóvember 2019 og er tengdur við markaðsverð á NordPool raforkumarkaðnum. Kemur sú tenging í stað álverðstengingar í gildandi samningi. Sjá nánar á vef Landsvirkjunar.
Norræna vatnsveituráðstefnan 2016 verður haldin í Hörpu í Reykjavík dagana 28. – 30. september.
Ráðstefnan er haldin annað hvert ár og þar koma saman sérfræðingar Norðurlandanna í vatnstengdum fræðum og fjalla um hinar ýmsu hliðar á vatnsveitum og drykkjarvatni. Metnaðarfull dagskrá verður í boði með alls 90 erindum sem fjalla um ýmist dreifikerfi vatns, rekstur vatnsveitna, fræðslu, gæði og meðhöndlun drykkjarvatns, vatnsvernd og fleira.
Ráðstefnan fer fram á ensku.
Skráning er hafin á heimasíðu ráðstefnunnar, ndwc.is.
Landsvirkjun og Thorsil hafa skrifað undir samning um afhendingu á rafmagni til kísilvers Thorsil í Helguvík í Reykjanesbæ. Um er að ræða allt að 55 megavött af afli eða sem samsvarar 460 gígavattstundum af orku á ári. Afhending hefst árið 2018 þegar ráðgert er að gangsetja kísilverið.
Orkan verður afhent í áföngum úr núverandi aflstöðvakerfi Landsvirkjunar. Sem kunnugt er hefur fyrirtækið nú tvær virkjanir í byggingu, stækkun Búrfellsvirkjunar og jarðvarmavirkjun að Þeistareykjum.
Meira á síðu Landsvirkjunar.
Netorka býður til ráðstefnu um breytingar á umhverfi orkufyrritækja á Norðurlandi og Íslandi þann 19. maí frá 13-17 í húsi OR, Bæjarhálsi 1. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan pláss leyfir en skráningar er óskað.
Hrefna Kristmannsdóttir og Ragna Karlsdóttir hlutu á dögunum brautryðjendaverðlaun alþjóðasamtakanna Women in Geothermal, WING, fyrir framlag sitt til útbreiðslu jarðhitanotkunar í heiminum. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, afhenti þeim verðlaunin í móttöku samtakanna á jarðhitaráðstefnunni Iceland Geothermal Conference, sem fram fór í Reykjavík dagana 26. -28. apríl.
Hrefna var fyrsta íslenska konan til að ljúka doktorsprófi í jarðfræði. Það gerði hún frá Oslóarháskóla árið 1970. Hún átti langan starfsferil sem jarðefnafræðingur á Orkustofnun og átti þátt í að þróa efnafræðilegar aðferðir við mat á jarðhitaholum sem nú er beitt við allar slíkar boranir. Hrefna hefur verið mikilvirk á vísindasviðinu og skrifað um 100 greinar sem birst hafa í vísindatímaritum.
Ragna Karlsdóttir er jarðeðlisfræðingur sem einnig starfaði lengi hjá Orkustofnun og nú síðari ár hjá ÍSOR. Þar hóf hún störf árið 1970 og hefur komið að rannsóknum, líkanagerð og auðlindamati á öllum þeim háhitasvæðum sem nýtt eru hér á landi og flestum lághitasvæðunum með einhverjum hætti.
Báðar hafa þær Ragna og Hrefna komið að starfi Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna, sem rekinn er hér á landi.
WING eru samtök sem hvetja til framgangs kvenna innan jarðhitageirans, styðja við konur sem þar starfa og leitast við að gera störf þeirra á þeim vettvangi sýnilegri. Samtökin voru stofnuð 2013.
Móttaka WING var haldin í félagi við Konur í orkumálum, sem eru samtök kvenna sem starfa við orkumál á Íslandi. Þau samtök eru líka ný af nálinni.
Auk iðnaðar- og viðskiptaráðherra ávarpaði Andrea Blair, forseti WING, samkomuna.