Nýsköpun og tækni verður í forgrunni á opnum ársfundi Samorku.
Að þessu sinni er gert ráð fyrir að fundurinn verði eingöngu streymisfundur.
Nýsköpun hefur ávallt verið stór hluti af orku- og veitugeiranum á Íslandi og hefur ný þekking og framsýni lagt grunninn að lífsgæðum í landinu og verðmætasköpun. Á ársfundi Samorku verður fjallað um þessa grósku í fortíð, nútíð og framtíð.
Tilkynnt verður um dagsetningu ársfundar innan skamms.