Fagsviðsstjóri óskast til Samorku
Fagsviðsstjóri
Hefur þú áhuga á:
Orkuskiptum?
Umhverfismálum?
Traustum innviðum?
Snjallvæðingu?
Samorka óskar eftir að ráða drífandi einstakling sem býr yfir miklu frumkvæði, skipulögðum vinnubrögðum og getu til að sinna mikilvægum og spennandi verkefnum í heimi orku- og veitumála. Um er að ræða skemmtilegt starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að leiða faglegt starf samtakanna, sinna þekkingarmiðlun og samskiptum við stjórnvöld.
Samorka eru samtök orku- og veitufyrirtækja á Íslandi. Aðildarfélög Samorku eru um 50 talsins og með starfsemi um land allt. Hlutverk samtakanna er að starfrækja trúverðugan, fræðandi og jákvæðan vettvang um starfsemi orku- og veitufyrirtækja og styrkja þannig stöðu þeirra og rekstur.
Samorka er aðili að Samtökum atvinnulífsins og er staðsett í Húsi atvinnulífsins að Borgartúni 35. Í starfinu felst tækifæri til að vinna náið með ýmsum sérfræðingum aðildarfyrirtækja Samorku auk sérfræðinga annarra samtaka í Húsi atvinnulífsins
Helstu verkefni:
- Móta starfsumhverfi orku- og veitugeirans
- Umsjón með starfi fag- og málefnahópa sem starfa á vettvangi samtakanna
- Samstarf við ráðuneyti og opinberar stofnanir
- Umsjón með ráðstefnum um málefni orku- og veitugeirans
- Skipulagning námskeiða og fræðslu fyrir aðildarfyrirtæki
- Faglegur stuðningur við ýmis verkefni innan orku- og veitugeirans
- Eftirfylgni með nýrri stefnu samtakanna
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði verkfræði/tæknifræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Þekking á orku- og veitugeiranum er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Færni í markvissri framsetningu upplýsinga
- Færni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku
Nánari upplýsingar um starfið veitir Thelma Krístín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511-1225 og Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku (pall@samorka.is).
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 18. janúar 2021. Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
https://intellecta.is/storf/