Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2017: Tilnefningar óskast
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins verða afhent fimmtudaginn 12. október fyrirtækjum sem staðið hafa sig vel í umhverfismálum. Athöfnin fer fram á Hilton Reykjavík Nordica á Umhverfisdegi atvinnulífsins, sem að þessu sinni er helgaður loftslagsmálum.
Óskað er eftir tilnefningum fyrir 12. september nk. með tölvupósti á sa@sa.is merktum: „Tilnefning til umhverfisverðlauna atvinnulífsins“.
Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verður umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins verðlaunað. Dómnefnd velur úr tilnefningum og mun meðal annars skoða eftirfarandi þætti:
Umhverfisfyrirtæki ársins
- Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi
- Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar
- Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni
- Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel
- Innra umhverfi er öruggt
- Áhættumat hefur verið gert fyrir starfsemina
- Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr neikvæðum áhrifum starfseminnar á umhverfi
Framtak ársins
- Hefur komið fram með nýjung – nýja vöru, þjónustu eða aðferð – sem hefur jákvæð umhverfisáhrif
- Hefur efnt til athyglisverðs átaks til að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni
- Gagnast í baráttu við loftslagsbreytingar
Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.